1. gr.
Félagið heitir IÐN-UNG
2. gr.
Tilgangur félagsins er að vera hagsmunafélag fyrir ungliða í iðnaði
3. gr.
Með tilgangi sínum hyggst félagið verða samráðsvettvangur fyrir ungt fólk í iðnaði, virkja fleiri til þátttöku í störfum stéttarfélaga og vera hagsmunaaðili fyrir þá sem stunda iðnnám.
4. gr.
Félagið er fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 35 ára. Allir þeir sem greiða félagsgjöld til stéttarfélaga/deilda eða slíkt í iðnaði eru gjaldgengir í félagið.
5. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn geta verið þátttakendur í aðalfundi. En stjórn hefur heimild til þess að ákveða annað.
6. gr.
Starfstímabil félagsins er frá 1. janúar til 31. desember. Aðalfundur skal vera haldin í seinasta lagi í loks annars ársfjórðungs og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með tölvupósti og/eða auglýsingum á netmiðlum.
Aðalfundur er löglegur ef rétt er til hans boðað og meirihluti stjórnar er viðstaddur. Dagskrá aðalfundar skal innihalda hefðbundin aðalfundarstörf.
Auka aðalfundur er haldinn ef félagsstjórn eða ef 30 félagsmenn krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni. Allar sömu reglur og um aðalfund gilda um boðun og framkvæmd auka aðalfundar.
Félagsfundir skulu haldnir þegar stjórn félagsins telur þörf á eða ef 15 félagsmenn krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.
Félagsfundi skal boða með lágmarki 72 klukkustunda fyrirvara með boði í tölvupósti og/eða auglýsingum á netmiðlum.
Öllum fundum skal stýrt samkvæmt fundarsköpum félagsins. Einfaldur meirihluti félagsmanna ræður úrslitum mála nema þessi lög kveði á annað. Allir fundir eru löglegir sé boðað til þeirra samkvæmt þessum lögum og meirihluti stjórnar sé mættur.
7.gr
Stjórn félagsins skal skipuð 3 til 10 einstaklingum, formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og 3 til 6 meðstjórnendum. Formaður og ritari eru kosnir á oddatölu ári og varaformaður og gjaldkeri eru kosnir á sléttatölu ári. Stjórn skal kosin árlega.
Stjórnarmeðlimur sem mætir ekki á 4 stjórnarfundi í röð og boðar ekki fjarveru sína skal vikið úr stjórn
Stjórnin skiptir með sér öðrum verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda.
Framboðsfrestur er þrem vikum fyrir aðalfund ár hvert til kl. 15:00 þann dag og skal auglýstur tveim vikum fyrir frest til framboðs. Framboði skal skila á netfang IÐN-UNG, idnung@fagfelogin.is.
Frambjóðendum skal raðað eftir stafrófsröð á kjörseðli. Í rafrænni kosningu skal vera í boði að skila auðu. Komi aðeins eitt framboð í stöðu, þarf ekki að fara fram kosning.
Framboð skulu vera sérstaklega til formanns og varaformanns.
Frambjóðanda er heimilt að draga framboð sitt til baka fyrir aðalfund svo framarlega sem tryggt sé að framboð sé í sömu stöðu.
Í samráði við stjórn skal gefa frambjóðendum kost á að kynna sig á vefmiðli félagsins.
8.gr.
Félagið hyggst fjármagna starfsemi sína með styrkjum
9. gr.
Fjármunum sem félagið fær skal varið til uppbyggingar félagsins og nýtt í þá viðburði og fundi sem haldnir eru á vegum félagsins.
10.gr.
Stjórn félagsins hefur heimild til þess að gera breytingar á þessum lögum með samþykki lagavottar sem er einn starfsmaður fagfélaganna með tveggja vikna fyrirvara.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með ⅔ hluta mættra félagsmanna.
11. gr
Stjórn IÐN-UNG fær aðstoð frá starfsfólki fagfélaganna fyrir ýmis verkefni sem tengjast starfseminni
———–
Lög þessi voru samþykkt á Aðalfundi
Dagsetning: 16.04.26
