VM – Styrkir

Þessi styrkir sem hér eru listaðir niður eru einungis brot af því sem hægt er að nýta sér. Fleiri styrkir má sjá á vefsíðu VM.

🩼 Sjúkrasjóður VM

Sjúkrasjóðurinn veitir félagsmönnum eftirfarandi styrki:

  • 🏥 Sjúkradagpeningar: Greiðslur til sjóðfélaga sem missa vinnutekjur vegna eigin veikinda eða slysa, eða vegna veikinda/slysa maka og barna undir 18 ára aldri.
  • ⚰️ Dánarbætur: Greiðslur vegna andláts sjóðfélaga.
  • 🏃🏼 Endurhæfing og læknismeðferð: Styrkir til að sækja sér endurhæfingu og sérstaka læknismeðferð eftir ákvörðun sjóðstjórnar.
  • 🛌 Dvalarstyrkur: Hlutfall húsaleigu eða annars gistikostnaðar vegna sjúkrahúsdvalar eða læknisaðgerðar maka eða barns undir 18 ára aldri sem sækja þarf utan heimabyggðar innanlands og Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki.
  • 💪🏻 Líkamsræktarstyrkur: Styrkur fyrir kostnaði tengdum líkamsrækt, svo sem áskriftum að líkamsræktarstöðvum, sundkortum og þátttöku í íþróttafélögum.
  • 🧐 Nánar má sjá á heimsíðu VM.

📚 Fræðslusjóður VM

Fræðslusjóðurinn styður við menntun og þjálfun félagsmanna með eftirfarandi hætti:

  • ⚽️ Tómstundanám: Styrkur sem nemur 60% af námskostnaði, að hámarki upphæð sem nemur inneign félagsmanns í sjóðnum.
  • 🔨 Fagnám: Styrkur sem nemur 75% af námskostnaði, að hámarki upphæð sem nemur inneign félagsmanns í sjóðnum.
  • 🤓 Náms- og kynnisferðir erlendis: Styrkir til félagsmanna sem fara í náms- og kynnisferðir erlendis, skipulagðar af viðkomandi starfsmönnum til kynningar á tengdri starfsemi.
  • 🧐 Nánar má sjá á heimsíðu VM.

🎨 Akkur – Styrktar- og menningarsjóður VM

Akkur sjóðurinn veitir árlega fjárstyrki til:

  • 🔬 Rannsóknarverkefna
  • 📚 Brautryðjenda- og þróunarstarfa
  • 🎬 Menningarstarfsemi og listsköpunar

Markmið sjóðsins er að styrkja verkefni sem koma félagsmönnum VM til góða við nám og störf til lands og sjávar, auk verkefna sem hafa samfélagslegt gildi.


🏡 Orlofssjóður VM

Orlofssjóðurinn er rekinn með það að markmiði að skapa félagsfólki og fjölskyldum þeirra aðstöðu og færi á að njóta orlofs á fjölbreyttan hátt til hvíldar og hressingar á viðráðanlegu verði.


🛠️ Styrkir til hugvitsmanna vegna öryggis á sjó

Samgöngustofa auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og nýsköpunarverkefna sem snúa að öryggi og heilsusamlegu umhverfi sjófarenda. Styrkirnir eru ætlaðir einstaklingum eða félögum sem hafa hugmyndir eða lausnir varðandi öryggi skipa, búnaðar um borð, öryggi atvinnusjómanna og farþega eða heilbrigðismál á sjó.